Fotbolti.net
22.07.12 - 12:30
Brynjar Ingi Erluson

Paulo Assuncao til Sao Paulo (Staðfest)

Paulo Assuncao til Sao Paulo (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Paulo Assuncao hefur samið við brasilíska félagið Sao Paulo, en hann gerði eins árs samning við félagið á dögunum.
Assuncao, sem er 32 ára gamall ákvað að rifta samning sínum við spænska liðið Atletico Madrid, en hann átti einungis eitt ár eftir af samning sínum hjá félaginu og komst hann því að samkomulagi við félagið.

Hann vann þrjá Evróputitla á tíma sínum hjá Atletico Madrid, en liðið vann Evrópudeildina tvívegis og Súperbikarinn einu sinni.

,,Ég mun alltaf muna eftir tíma mínum hjá Atletico. Ég vona að liðið geri vel á þessu tímabili og nái þeim markmiðum sem félagið hefur sett sér. Ég er spenntur fyrir því að koma aftur til Brasilíu og vonandi get ég sýnt hvað í mér býr,\" sagði Assuncao.

Heimild: FIFA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.