Fotbolti.net
22.07.12 - 19:35
Elvar Geir Magnússon

Eyjólfur Tómasson í Val (Staðfest)

Eyjólfur Tómasson í Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Slava Titov

Markvörðurinn Eyjólfur Tómasson hefur verið lánaður til Pepsi-deildarliðs Vals frá 1. deildarliði Leiknis.

Félögin hafa markmannsskipti út tímabilið en fyrir helgi fór Ásgeir Þór Magnússon yfir til Leiknis og lék í marki liðsins gegn Þór í dag.
Eyjólfur er 23 ára og var valinn besti markvörður 1. deildarinnar 2010. Hann hefur allan sinn feril verið hjá Leikni en lék fyrir KB, varalið félagsins, þegar hann var í 2. flokki.

Hann verður í leikmannahópi Vals á morgun þegar liðið mætir Fram í Pepsi-deildinni.

Ólafur Þór Gunnarsson varði mark Vals í síðasta leik en hann mun fara aftur út til Bandaríkjanna í næsta mánuði þar sem hann er búsettur. Sindri Snær Jensson er að jafna sig á meiðslum og munu hann og Eyjólfur keppast um markmannsstöðuna hjá liðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.