Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 22. júlí 2018 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Aron Ýmir í Kára á láni (Staðfest)
Aron Ýmir Pétursson.
Aron Ýmir Pétursson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bakvörðurinn Aron Ýmir Pétursson ætlar að leika með Kára á seinni hluta tímabilsins.

Samkvæmt vefsíðu KSÍ er um lánssamning að ræða.

Aron lék fimm leiki með Kára í deild og bikar á síðasta tímabili og nú er hann mættur aftur til félagsins. Aron hefur verið á mála hjá ÍA sumar en aðeins náð að spila einn leik.

Aron, sem er 28 ára, er uppalinn á Skaganum en hann hefur einnig leikið með Þrótt R. og HK á ferli sínum.

Þetta er góður liðsstyrkur fyrir Kára sem er í toppbaráttu í 3. deild. Með sigri gegn Fjarðabyggð á eftir getur liðið mögulega komist á topp deildarinnar.

Sjá einnig:
Gylfi Veigar í Kára (Staðfest)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner