Fotbolti.net
22.07.21 - 22:57
Ívan Guðjón Baldursson

Eiður Smári orðaður við stjórastöðuna hjá Swansea

Eiður Smári orðaður við stjórastöðuna hjá Swansea
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Smári Guðjohnsen, aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins, er orðaður við knattspyrnustjórastarfið hjá Swansea.

Liðið hafnaði í fjórða sæti í Championship-deildinni á síðasta tímabili en tapaði í úrslitaleik við Brentford um sæti í ensku úrvalsdeildinni.
Swansea er í stjóraleit eftir að hinn eftirsótti Steve Cooper fékk að vera leystur undan samningi.

Eiður Smári er ekki talinn líklegastur af veðmálasíðu Sky Bet en hann er þó alls ekki ólíklegur. John Eustace er líklegastur til að taka við og svo kemur Cameron Toshack.

Næstir á eftir þeim eru Alan Tate og Eiður Smári, en þeir fá líkurnar 11 á móti 1 að vera ráðnir.

Það er einnig hægt að veðja á Chris Wilder, Eddie Howe og Frank Lampard en þeir eru allir taldir ólíklegri heldur en Eiður.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.