Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
Brynjar Björn um rauða spjaldið: Þetta er nú eina trixið sem ég kann
Lagði upp fjögur mörk í Eyjum - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Luke Rae: Mér fannst aldrei líklegt að þeir myndu koma til baka
Skoraði draumamark en þarf að hætta tuða - „Kontra hann svo í Samúel”
Hilmar Árni: Það þarf oft lítið til að meiða okkur
Linta: Ég vil óska strákunum til hamingju
„Mér fannst þeir orðnir hræddir"
Jóhann: Grafalvarlegt fyrir okkur
Badu: Hef aldrei efast um karakterinn
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
   fim 22. ágúst 2019 20:52
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arnar Hallsson: Frammistaðan til skammar fyrir minn hóp
Mynd: Raggi Óla
„Hundleiðinlegur leikur, meira að segja þjálfurunum leiddist hann var svo lélegur," sagði Arnar Hallsson, þjálfari Aftureldingar, eftir 1-1 jafntefli gegn Haukum í Inkasso-deildinni í kvöld.

Lestu um leikinn: Haukar 1 - 1 Afturelding.

„Dómarinn dæmdi þetta fínt, svolítið fljótur með spjöldin í fyrri hálfleik. Það voru aðallega leikmennirnir sem voru lélegir," sagði Arnar um dómgæsluna en Búi, þjálfari Hauka, var ekki parsáttu með dómgæsluna í leiknum.

Sjá einnig: Búi: Dómgæslan í sumar orðin þreytt

Afturelding byrjaði leikinn vel en Haukar kláraði hálfleikinn talsvert betur.

„Við duttum í það að þetta var orðið svo þægilegt, þægilegt að halda boltanum. Við hættum að ögra okkur, það vantaði allt "spunk" í þetta og þess vegna fáum við þetta mark á okkur. Því miður vorum við það lélegir að við náðum ekki að opna þá til að skora annað mark."

„Ég er hundfúll með frammistöðuna og hundfúll með stigið. Mér finnst þetta til skammar fyrir minn hóp að koma hingað og gera ekki betur en þetta."


Nánar er rætt við Arnar í viðtalinu í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner