Chelsea og Man Utd berjast um miðjumann - Palace vill leikmann Bayern og Brennan Johnson
   sun 22. september 2019 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Liverpool heimsækir Chelsea
Það er svakalegur Ofursunnudagur framundan í ensku úrvalsdeildinni þar sem hvorki meira né minna en fjórir leikir fara fram.

Dagurinn byrjar á viðureign West Ham gegn Manchester United en liðin eru jöfn með átta stig eftir fimm umferðir.

Rauðu djöflarnir verða án nokkurra lykilmanna. Daniel James gæti jafnað sig fyrir upphafsflautið en Paul Pogba, Anthony Martial og Luke Shaw eru ólíklegri.

Á sama tíma fær Crystal Palace heimsókn frá Úlfunum. Palace er með sjö stig en Úlfarnir hafa farið illa af stað og eiga enn eftir að vinna leik.

Stórleikur helgarinnar á sér svo stað síðar í dag, þegar Chelsea tekur á móti Liverpool.

Þar er um stórleik að ræða og verður áhugavert að sjá hvernig lærisveinum Frank Lampard gengur gegn ósigruðu liði Liverpool, sem trónir á toppi úrvalsdeildarinnar með fullt hús stiga.

Meiðslalisti heimamanna er ansi langur. N'Golo Kante, Mason Mount og Callum Hudson-Odoi eru allir tæpir auk nokkurra leikmanna sem eru frá í lengri tíma.

Arsenal á einnig leik í dag, á heimavelli gegn Aston Villa. Lærisveinar Unai Emery hafa ekki unnið deildarleik í rúman mánuð.

Leikir dagsins:
13:00 West Ham - Man Utd (Síminn Sport)
13:00 Crystal Palace - Wolves
15:30 Chelsea - Liverpool (Síminn Sport)
15:30 Arsenal - Aston Villa
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 16 11 3 2 30 10 +20 36
2 Man City 15 10 1 4 35 16 +19 31
3 Aston Villa 15 9 3 3 22 15 +7 30
4 Chelsea 16 8 4 4 27 15 +12 28
5 Crystal Palace 15 7 5 3 20 12 +8 26
6 Liverpool 16 8 2 6 26 24 +2 26
7 Man Utd 15 7 4 4 26 22 +4 25
8 Everton 16 7 3 6 18 19 -1 24
9 Brighton 16 6 5 5 25 23 +2 23
10 Sunderland 15 6 5 4 18 17 +1 23
11 Tottenham 15 6 4 5 25 18 +7 22
12 Newcastle 15 6 4 5 21 19 +2 22
13 Bournemouth 15 5 5 5 21 24 -3 20
14 Fulham 16 6 2 8 23 26 -3 20
15 Brentford 15 6 1 8 21 24 -3 19
16 Leeds 15 4 3 8 19 29 -10 15
17 Nott. Forest 15 4 3 8 14 25 -11 15
18 West Ham 15 3 4 8 17 29 -12 13
19 Burnley 16 3 1 12 18 33 -15 10
20 Wolves 16 0 2 14 9 35 -26 2
Athugasemdir
banner