Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 22. september 2019 19:00
Brynjar Ingi Erluson
Grikkland: Ögmundur hélt hreinu í sigri - Sverrir enn á bekknum
Ögmundur Kristinsson hélt hreinu í Grikklandi
Ögmundur Kristinsson hélt hreinu í Grikklandi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ögmundur Kristinsson, markvörður Larissa í grísku úrvalsdeildinni, hélt hreinu í 3-0 sigri Larissa á Xanthi í dag.

Ögmundur hefur verið frábær með Larissa en aðeins einn markvörður hefur fengið á sig færri mörk í deildinni og er það Jose Sá, markvörður Olympiakos, sem hefur ekki fengið á sig mark til þessa.

Sverrir Ingi Ingason, varnarmaður PAOK, sat þá allan tímann á bekknum er lið hans gerði 2-2 jafntefli við Aris.

Sverrir hefur aðeins spilað 52 mínútur í grísku deildinni á þessu tímabili en hann ákvað að gefa ekki kost á sér í síðasta landsliðsverkefni til að einbeita sér að því að komast í liðið hjá PAOK.

PAOK er í 2. sæti með 10 stig en Ögmundur og félagar í Larissa eru í 8. sæti með 4 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner