Fotbolti.net
22.09.19 - 22:07
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu mörkin: Liverpool lagði Chelsea á Stamford Bridge

Sjáðu mörkin: Liverpool lagði Chelsea á Stamford Bridge
Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool vann Chelsea 2-1 á Stamford Bridge í dag í 6. umferð ensku úrvalsdeildarinnar en í fréttinni má sjá öll mörk dagsins.
Trent Alexander-Arnold skoraði úr aukaspyrnu áður en Roberto Firmino bætti við öðru með góðum skalla.

N'Golo Kante minnkaði muninn með góðu skoti undir lok leiks en hér fyrir neðan má sjá öll mörkin úr leiknum. Þar má meðal annars sjá markið sem Cesar Azpilicueta skoraði en var síðar dæmt af þar sem Mason Mount var rangstæður í aðdraganda marksins.

Liverpool er á toppnum með fullt hús stiga eða 18 stig. Chelsea er með 8 stig í 11. sæti.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.