Kemar Roofe setti met með marki sínu í Evrópudeildinni í kvöld.
Enginn hefur skorað af lengra færi í sögu Evrópudeildarinnar.
Roofe skoraði á þriðju mínútu uppbótartíma gegn Standard Liege. Rangers, liðið sem Roofe leikur með, vann leikinn 0-2.
Roofe komst í boltann á u.þ.b. miðjum vallarhelmingi Rangers og kom sér að miðlínunni.
Þegar boltinn var við það að snerta miðlínuna lét Roofe vaða og boltinn hafnaði í neti heimamanna í Standard.

Markið má sjá með því að smella hér.
Roofe er 27 ára sóknarmaður. Hann er uppalinn hjá WBA en hefur einnig leikið með Leeds, Víkingi R., Anderlecht og Oxford á sínum ferli.
Athugasemdir