Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fös 22. október 2021 21:58
Sigríður Dröfn Auðunsdóttir
„Rétt fyrir fyrirgjöfina þá heyrist: NEEIII, gefðu hann út"
Icelandair
Guðný Árnadóttir.
Guðný Árnadóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðný Árnadóttir átti góðan leik í hægri bakverðinum gegn Tékkum í kvöld og átti meðal annars eina stoðsendingu og margar góðar fyrirgjafir í leiknum.

Þorsteinn Halldórsson og Glódís Perla Viggósdóttir sátu fyrir svörum á blaðamannafundi og voru sammála um það að Guðný hafi staðið sig vel og væri að aðlagast nýju hlutverki á vellinum hratt og vel, en hún spilar yfirleitt í miðverði.

Lestu um leikinn: Ísland 4 -  0 Tékkland

Þorsteinn var spurður hvernig hann mæti frammistöðu hennar.
„Bara vel. Hún er bara að þróast og þroskast og ég er bara sáttur við hana. Við fáum bara flotta hluti frá henni og hún á bara eftir að verða betri."

Glódís Perla talaði einnig vel um Guðnýju.
„ Já klárlega hún er það, mér finnst hún bara búin að venjast þessu ótrúlega hratt, þetta er náttúrulega bara annar leikurinn sem hún er að spila þarna og þvílíkur stígandi bara, alltaf, bara með hverri mínútunni þannig mér finnst hún bara ótrúlega flott og stendur sig vel. Hún er líka leiðtogi og talar mikið og er örugg á sínu, svo þannig bara ótrúlega flott hjá henni.

Glódís Perla benti á að Steini hafi hreint ekki verið sáttur með ákvörðun Guðnýjar að senda boltann fyrir þegar hún lagði upp markið á Gunnhildi Yrsu.

„Heyrðuð þið ekkert í Steina þarna á hliðarlínunni eða? rétt fyrir fyrirgjöfina þá heyrist bara NEEIII gefðu hann út. Hún tekur allavega sínar eigin ákvarðanir, ánægð með hana."
Athugasemdir