23.01.25 - 15:30
Elvar Geir Magnússon
Stilltu upp meiðslaliði Tottenham

Ange Postecoglou.

Mynd: EPA

Ange Postecoglou.

Mynd: EPA
Klukkan 17:45 verður flautað til leiks Hoffenheim og Tottenham í Evrópudeildini en Spurs situr í níunda sæti deildarinnar.
Meiðslalisti Tottenham er gríðarlega langur. Margir telja að þjálfunaraðferð og leikaðferð Ange Postecoglou sé stór hluti ástæðunnar.
Meiðslalistinn er það langur að fréttamenn BBC settu saman úrvalslið meiddra leikmanna liðsins. Breiddinn er það mikil að hægt er að setja Sergio Reguilon og markvörðinn Antonin Kinksy á bekkinn.
Yves Bissouma og Pape Sarr gætu orðið klárir í deildarleik gegn Leicester um helgina. Það er um vika eða tíu dagar í Cristian Romero.

TENGT EFNI
Evrópudeildin í dag - Rangers mætir á Old Trafford - Orri mætir toppliðinu