23.03.18 - 11:30
Magnús Már Einarsson
Clement tekur við Reading (Staðfest)

Paul Clement er mættur aftur í boltann.

Mynd: Getty Images

Paul Clement er mættur aftur í boltann.

Mynd: Getty Images
Paul Clement hefur verið ráðinn stjóri Reading en félagið staðfesti þetta í dag.
Reading hefur einungis unnið einn af síðustu 19 leikjum í Championship deildinni og er nú í 20. sæti, þremur stigum frá falli. Jaap Stam var rekinn frá liðinu í vikunni og Clement hefur nú tekið við.
Clement var sjálfur rekinn frá Swansea í desember eftir dapurt gengi.
Íslenski landsliðsmaðurinn Jón Daði Böðvarsson spilar með Reading en hann er markahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu með tíu mörk. Stam keypti Jón Daða til Reading frá Wolves síðastliðið sumar.
U21 árs landsliðsmaðurinn Axel Óskar Andrésson er einnig á mála hjá Reading en hann fékk sínar fyrstu mínútur með aðalliðinu á þessu tímabili.

Jón Daði: Var best í stöðunni að láta Stam fara
Championship - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Birmingham | 15 | +14 | 29 |
| 2 | Middlesbrough | 15 | +11 | 29 |
| 3 | Stoke City | 15 | +6 | 29 |
| 4 | Wolves | 15 | +8 | 28 |
| 5 | West Brom | 15 | +8 | 28 |
| 6 | Swansea | 15 | +4 | 26 |
| 7 | Southampton | 15 | +14 | 24 |
| 8 | QPR | 15 | +6 | 24 |
| 9 | West Ham | 15 | +14 | 23 |
| 10 | Sheffield Utd | 15 | +2 | 22 |
| 11 | Portsmouth | 15 | +2 | 22 |
| 12 | Norwich | 15 | +8 | 21 |
| 13 | Blackburn | 15 | -1 | 21 |
| 14 | Cardiff City | 15 | 0 | 18 |
| 15 | Wrexham | 15 | -2 | 18 |
| 16 | Millwall | 15 | -4 | 18 |
| 17 | Bristol City | 15 | -8 | 18 |
| 18 | Bolton | 15 | -9 | 17 |
| 19 | Charlton Athletic | 15 | -10 | 17 |
| 20 | Watford | 15 | -10 | 15 |
| 21 | Lincoln City | 15 | -11 | 15 |
| 22 | Burnley | 15 | -9 | 10 |
| 23 | Derby County | 15 | -16 | 10 |
| 24 | Preston NE | 15 | -17 | 8 |