Fotbolti.net
23.03.18 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Hleb til BATE í fimmta sinn (Staðfest)

Hleb til BATE í fimmta sinn (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Alexander Hleb, fyrrverandi leikmaður Arsenal, er búinn að skrifa undir við BATE Borisov í fimmta sinn.

Hleb verður 37 ára gamall 1. maí og ætlar að ljúka ferlinum á kunnuglegum slóðum.
Hleb braust fram í sjónarsviðið með Dinamo-Juni Minsk í Hvíta-Rússlandi áður en hann var fenginn til BATE.

Hann entist þó ekki lengi hjá BATE því Stuttgart var búið að fá hann til sín eftir aðeins eitt tímabil hjá BATE. Hleb gerði garðinn frægan með Stuttgart og lék meðal annars fyrir Arsenal og Barcelona áður en hann sneri aftur til norðausturhluta Evrópu.

„Þetta verður síðasta tímabil ferilsins og ég ætla að leggja mitt af mörkum til að vinna titla hérna. Markmiðin eru að komast í gegnum undankeppni Meistaradeildarinnar og að vinna titla í heimalandinu,\" sagði Hleb um framtíðina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.