The Telegraph segir frá því að ítalski þjálfarinn Roberto De Zerbi sé meðal efstu manna á óskalista Tottenham þegar kemur að því að ráða nýjan stjóra til framtíðar.
De Zerbi hefur ekki áhuga á að taka við Tottenham á miðju tímabili en er reiðubúinn til að taka við starfinu ef liðið heldur sér uppi í ensku úrvalsdeildinni í vor.
De Zerbi gerði frábæra hluti við stjórnvölinn hjá Brighton í ensku úrvalsdeildinni áður en hann var ráðinn til Marseille í júní 2024, en yfirgaf starfið í febrúar eftir óviðunandi árangur.
Tottenham er óvænt í harðri fallbaráttu og má búast við að bráðabirgðaþjálfarinn Igor Tudor verði rekinn eftir slakt gengi frá því að hann tók við af Thomas Frank. 0-3 tap á heimavelli í fallbaráttuslag gegn Nottingham Forest í gær er talið hafa gert endanlega út um möguleika Tudor að halda starfinu út tímabilið.
Liðið er einu stigi fyrir ofan fallsæti þegar sjö umferðir eru eftir af deildartímabilinu.
Telegraph segir að stjórnendur Tottenham séu þegar búnir að ræða við De Zerbi um starfið, en að Mauricio Pochettino komi einnig sterklega til greina. Hann náði frábærum árangri á stjórnartíð sinni hjá félaginu frá 2014 til 2019 og starfar í dag sem landsliðsþjálfari Bandaríkjanna.
Það eru miklar breytingar að eiga sér stað innan herbúða Tottenham eftir að Daniel Levy var látinn fara í byrjun september. Félagið er í leit að nýjum yfirmanni fótboltamála og virðist Sebastian Kehl, sem er nýbúinn að láta af störfum eftir tæp fjögur ár hjá Borussia Dortmund, vera líklegastur í starfið.
24.02.2026 10:20
Tottenham hyggst breyta launakerfinu og taka til í hópnum
Athugasemdir






