Þróttur R. 2 - 4 Víkingur R.
0-1 Bergdís Sveinsdóttir ('5 )
0-2 Jasmín Erla Ingadóttir ('12 )
1-2 Unnur Dóra Bergsdóttir ('30 )
1-3 Jasmín Erla Ingadóttir ('59 )
1-4 Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir ('88 )
2-4 Unnur Dóra Bergsdóttir ('93 )
0-1 Bergdís Sveinsdóttir ('5 )
0-2 Jasmín Erla Ingadóttir ('12 )
1-2 Unnur Dóra Bergsdóttir ('30 )
1-3 Jasmín Erla Ingadóttir ('59 )
1-4 Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir ('88 )
2-4 Unnur Dóra Bergsdóttir ('93 )
Þróttur og Víkingur áttust við í áhugaverðum Reykjavíkurslag í undanúrslitum Lengjubikars kvenna og náðu gestirnir forystunni snemma leiks á AVIS vellinum í Laugardal.
Bergdís Sveinsdóttir skoraði eftir fimm mínútna leik og tvöfaldaði Jasmín Erla Ingadóttir forystuna sjö mínútum síðar.
Unnur Dóra Bergsdóttir minnkaði muninn fyrir heimakonur svo staðan var 1-2 í hálfleik, en Jasmín Erla var aftur á ferðinni í síðari hálfleik til að tvöfalda forystuna á nýjan leik.
Það var á lokamínútunum sem Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir innsiglaði sigur Víkinga með fjórða marki gestaliðsins.
Unnur Dóra minnkaði muninn í uppbótartíma en þar við sat, svo lokatölur urðu 2-4.
Víkingur mætir Íslandsmeisturum Breiðabliks í úrslitaleik á laugardaginn eftir að Blikar rústuðu Stjörnunni í undanúrslitaleiknum í Garðabæ.
Athugasemdir


