Manchester United ætlar óvænt að reyna að fá enska vinstri bakvörðinn Myles Lewis-Skelly frá Arsenal
   mán 23. mars 2026 21:00
Ívan Guðjón Baldursson
Rice: Einn úrslitaleikur skilgreinir okkur ekki
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Declan Rice lék allan er Arsenal tapaði gegn Manchester City í úrslitaleik deildabikarsins í gær.

Rice var mjög vonsvikinn að leikslokum en sagði að einn úrslitaleikur skilgreinir ekki Arsenal sem lið.

„Þetta er mjög erfitt og svekkjandi, við vildum ekki tapa þessum úrslitaleik en við getum sjálfum okkur um kennt. Við gáfum þeim tvö tækifæri og þeir nýttu þau, þetta hefði verið annar leikur ef við hefðum skorað úr okkar færi í fyrri hálfleiknum," sagði Rice eftir tapið.

„Það var margt jákvætt sem við getum tekið úr fyrri hálfleiknum en við vorum ekki nógu góðir eftir leikhlé. Við megum ekki staldra við þetta tap, við erum ennþá í þremur stórum keppnum og við þurfum að halda okkur jákvæðum og samheldnum. Það er ennþá mikið eftir af tímabilinu og við erum í góðri stöðu.

„Við töpum svo sjaldan að það er mjög erfitt andlega þegar það gerist, en einn úrslitaleikur skilgreinir okkur ekki sem lið. Við höfum verið eitt af bestu liðum Evrópu í ár, við erum á toppi úrvalsdeildarinnar og ennþá með í enska bikarnum og Meistaradeildinni.

„Við hefðum getað spilað betur í dag en svona er fótboltinn stundum, maður getur ekki alltaf verið upp á sitt besta. Það er mikið af mikilvægum leikjum framundan og við verðum að halda áfram að berjast."


Arsenal vann enska bikarinn á fyrsta tímabili Arteta við stjórnvölinn 2019-20 en hefur ekki unnið stóran titil síðan.

   22.03.2026 19:37
„Munum nýta vonbrigðin til að eiga frábærustu tvo mánuði sem við höfum átt saman"

Athugasemdir
banner
banner
banner