Fotbolti.net
23.03.26 - 23:30
Ívan Guðjón Baldursson

Stillti sér upp fyrir myndavélarnar rúllandi í grasinu

Þessum tveimur þykir gaman að gantast.

Þessum tveimur þykir gaman að gantast.

Canon

Mynd: EPA

Manchester City hafði betur gegn Arsenal í úrslitaleik enska deildabikarsins í gær.
Það var mikið um leiktafir í leiknum eins og er farið að tíðkast í sífellt meiri mæli í fótboltaheiminum, þar sem leikmenn rúlla sér í grasinu eftir tæklingar og þykjast vera sárþjáðir. Þetta gera þeir í tilraun til að fiska spjöld á andstæðingana sína, drepa niður hraða leiksins eða einfaldlega til að tefja.

Rayan Cherki leikmaður Man City fékk dæmda aukaspyrnu eftir samskipti við Ben White og rúllaði sér um í grasinu eins og margir kollegar hans hafa gert áður.

Það var þó alls ekkert að Cherki, sem stoppaði í miðri veltu til þess að stilla sér skemmtilega upp fyrir myndavélarnar áður en hann hélt áfram að rúlla sér í jörðinni gjörsamlega sárþjáður.


Rayan Cherki posing for camera after Ben White's tackle
by
u/Flexi_102 in
soccer
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.