Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   mán 23. mars 2026 16:43
Kári Snorrason
Tudor missti föður sinn
Mynd: EPA
Igor Tudor, stjóri Tottenham, ræddi ekki við fjölmiðla eftir 3-0 tap liðsins gegn Nottingham Forest í gær og var þá greint frá því að fjölskyldumeðlimur hafi látist.

Nú hefur félagið staðfest að um föður hans, Mario, var að ræða. Tottenham sendi Tudor og fjölskyldu hans samúðarkveðjur í yfirlýsingu sem birtist fyrr í dag.

Tudor hefur átt erfitt uppdráttar frá því hann tók við liðinu í febrúar en liðið hefur aðeins sótt eitt stig í fimm deildarleikjum sem hann hefur stýrt, ásamt því að falla úr leik í Meistaradeildinni.

Liðið er nú í 17. sæti, aðeins einu stigi frá fallsæti, nú þegar sjö umferðir eru eftir.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner