Örvar Eggertsson, leikmaður Stjörnunnar, fékk dæmda á sig vítaspyrnu gegn FH í síðustu umferð þar sem hann náði að renna sér í boltann en dómari leiksins dæmdi samt vítaspyrnu.
Þóroddur Hjaltalín, dómarastjóri KSÍ, sagði við Fótbolta.net að VAR hefði getað hjálpað dómaranum í því atviki. Fótbolti.net ræddi við Jökul Elísabetarson, þjálfara Stjörnunnar, um atvikið og VAR.
Þóroddur Hjaltalín, dómarastjóri KSÍ, sagði við Fótbolta.net að VAR hefði getað hjálpað dómaranum í því atviki. Fótbolti.net ræddi við Jökul Elísabetarson, þjálfara Stjörnunnar, um atvikið og VAR.
Hefur þú einhverja skoðun á því að fá VAR í deildina?
„Ég hef yfirleitt ekki verið að kvarta yfir dómum sem falla gegn okkur eftir leiki, en ef bara síðasta tímabil er tekið þá hafa margir dómar fallið gegn okkur, atvik í lok leikja þar sem ég held að VAR hefði getað leiðrétt dómana. Mér finnst VAR bara svo ofnotað og leiðinlegt dæmi eins og það er notað."
„20-30 sekúndna gluggi fyrir dómara til að taka ákvörðun með VAR er eitthvað sem ég væri mögulega hrifinn af. Ef það tekur lengri tíma þá er atvikið ekki klippt og skorið og VAR ætti ekki að stíga inn í. Ég vil ekki drepa alla stemningu og alla ástríðu úr leiknum. En ég vil ekki fá á okkur víti þegar enginn kemur nálægt andstæðingnum," segir Jökull.


