Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
laugardagur 25. apríl
Lengjudeild karla
laugardagur 18. apríl
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 14. apríl
Undankeppni HM kvenna
laugardagur 11. apríl
Mjólkurbikar karla
föstudagur 10. apríl
Besta deildin
fimmtudagur 2. apríl
Meistarakeppni kvenna
þriðjudagur 31. mars
Vináttulandsleikur
mánudagur 30. mars
Undankeppni EM U21
sunnudagur 29. mars
Mjólkurbikar karla
Meistarakeppni karla
föstudagur 27. mars
Kjarnafæðimótið Úrslit
fimmtudagur 26. mars
Mjólkurbikar karla
Undankeppni EM U21
laugardagur 21. mars
Bose-bikarinn Úrslit
Úrslit Lengjubikarsins
miðvikudagur 18. mars
Úrslit Þungavigtarbikarsins
þriðjudagur 17. mars
Undanúrslit Lengjubikarsins
laugardagur 14. mars
laugardagur 7. mars
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 3. mars
fimmtudagur 26. febrúar
Vináttulandsleikur
miðvikudagur 25. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
miðvikudagur 18. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
laugardagur 14. febrúar
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
miðvikudagur 11. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
fimmtudagur 27. nóvember
miðvikudagur 19. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
sunnudagur 16. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni EM U21
Undankeppni HM
miðvikudagur 12. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 23. apríl
Bikarkeppni
Stuttgart 1 - 1 Freiburg
Vináttuleikur
Spain U-17 2 - 1 Ukraine U-17
La Liga
Oviedo 0 - 1 Villarreal
Levante 2 - 0 Sevilla
Vallecano 1 - 0 Espanyol
fim 23.apr 2026 19:15 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá þjálfara og fyrirliða fyrir Lengjudeildina: 3. sæti

Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í Lengjudeildinni í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla fyrirliða og þjálfara í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í þriðja sæti er Njarðvík sem er með háleit markmið.

Njarðvík fagnar marki síðasta sumar.
Njarðvík fagnar marki síðasta sumar.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð Smári tók við þjálfun Njarðvíkur í vetur.
Davíð Smári tók við þjálfun Njarðvíkur í vetur.
Mynd/Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Eiður Aron verður algjör lykilmaður í sumar.
Eiður Aron verður algjör lykilmaður í sumar.
Mynd/Stefán Marteinn
Oumar Diouck getur skorað fullt af mörkum.
Oumar Diouck getur skorað fullt af mörkum.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haraldur Ágúst, hér til hægri, kom á láni frá Víkingum.
Haraldur Ágúst, hér til hægri, kom á láni frá Víkingum.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bragi Karl var keyptur frá FH.
Bragi Karl var keyptur frá FH.
Mynd/Njarðvík
Guy Smit er mættur í markið.
Guy Smit er mættur í markið.
Mynd/Helgi Þór Gunnarsson
Leandro Fernandes er spennandi leikmaður.
Leandro Fernandes er spennandi leikmaður.
Mynd/Njarðvík / Aðsend
Tómas Bjarki verður ekkert með í sumar eftir að hafa slitið krossband.
Tómas Bjarki verður ekkert með í sumar eftir að hafa slitið krossband.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hvað gerir Njarðvík í sumar?
Hvað gerir Njarðvík í sumar?
Mynd/Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Spáin:
1. ?
2. ?
3. Njarðvík, 209 stig
4. Afturelding, 201 stig
5. HK, 158 stig
6. Vestri, 155 stig
7. Grindavík, 110 stig
8. ÍR, 104 stig
9. Leiknir R., 95 stig
10. Grótta, 68 stig
11. Ægir, 51 stig
12. Völsungur, 15 stig

3. Njarðvík
Njarðvík hefur verið eitt af mest spennandi liðum Lengjudeildarinnar síðustu ár og uppgangurinn hjá félaginu hefur verið áberandi. Á köflum í fyrra leit út fyrir að liðið myndi tryggja sér beint sæti upp í efstu deild, en það fjaraði undan því þegar á leið og að lokum endaði tímabilið með sáru tapi gegn nágrönnunum í Keflavík í umspilinu. Þeim er nú spáð 3. sæti fyrir komandi tímabil, sem endurspeglar þá trú sem margir hafa á verkefninu í Njarðvík. Félagið hefur lagt mikið í leikmannahópinn og metnaðurinn er augljós, annað en barátta um sæti í Bestu deildinni yrði einfaldlega vonbrigði. Kjarni liðsins er orðinn sterkur og reynslumikill, auk þess sem ákveðið hungur virðist vera til staðar eftir hvernig síðasta tímabil endaði. Lengjudeildin er þó sjaldan fyrirsjáanleg og margir keppinautar vel mannaðir, en Njarðvík virðist hafa bæði breidd og gæði til að standa í fremstu röð.

Þjálfarinn: Davíð Smári Lamude var ráðinn þjálfari Njarðvíkur í vetur eftir að Gunnar Heiðar Þorvaldsson hætti störfum. Davíð, sem stýrði Vestra til bikarmeistaratitilsins síðastliðið sumar, skrifaði undir samning við Njarðvíkinga út tímabilið 2027. Á tíma sínum hjá Vestra kom Davíð liðinu upp úr Lengjudeildinni í Bestu deildina á sínu fyrsta ári, hélt sæti liðsins í Bestu deildinni árið eftir og vann á liðnu tímabili fyrsta bikarmeistaratitil í sögu Vestra. Hann var látinn fara eftir slæmt gengi liðsins eftir bikarúrslitaleikinn. Áður en Davíð tók við Vestra hafði hann stjórnað hjá Kórdrengjum á árunum 2017-2022 þar sem liðið fór alla leið upp úr 4. deild upp í Lengjudeildina. Davíð er þekktur fyrir það að ná fram því mesta út úr þeim liðum sem hann hefur í höndunum og nú er stefnan sett á að koma Njarðvík upp.

Álit Badda
Fótboltaþjálfarinn Baldvin Már Borgarsson er sérfræðingur Fótbolta.net fyrir Lengjudeildina. Hann rýnir í öll liðin fyrir tímabilið sem er framundan.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hafa sett tóninn í vetur
„Njarðvíkingar hafa sett tóninn í vetur eftir að hafa verið hársbreidd frá efstu deild í fyrra."

„Davíð Smári, Eiður Aron, Guy Smit og svo sterkir erlendir leikmenn að öðrum ólöstuðum hafa komið þarna inn og nú þýðir ekkert minna en bara árangur."

„Njarðvíkingar verða drullu erfiðir að eiga við, þeir geta hæglega klárað þessa deild og persónulega myndi ég spá þeim efsta sæti."


Lykilmenn: Eiður Aron Sigurbjörnsson og Oumar Diouck
Það var stórt fyrir Njarðvík að klófesta Eið Aron í vetur en hann sýndi það í fyrra að hann getur enn vel spilað í Bestu deildinni. Hann var meðal annars stórkostlegur í bikarúrslitaleiknum þegar Vestri lagði Val og framan af átti hann geggjað sumar. Núna er hann mættur í Lengjudeildina og þar verður hann í sérflokki þegar kemur að varnarmönnum ef allt er eðlilegt. Hann kemur inn í lið Njarðvíkur með mikla reynslu og mikil gæði. Oumar Diouck er á sama tíma einn öflugasti framherji deildarinnar. Síðasta sumar átti hann stóran þátt í besta árangri í sögu Njarðvíkur er liðið hafnaði í öðru sæti Lengjudeildarinnar og var hann markahæstur í deildinni með 15 mörk ásamt Sigfúsi Fannari Gunnarssyni hjá Þór.

Gaman að fylgjast með: Haraldur Ágúst Brynjarsson
Haraldur Ágúst er efnilegur bakvörður sem kemur á láni til Njarðvíkinga frá Víkingi. Haraldur þykir bráðefnilegur og er með tíu leiki að baki fyrir unglingalandslið Íslands, þar af fimm fyrir U18 liðið. Hann kemur til með að spila ágætis hlutverk fyrir Njarðvík í sumar og verður spennandi að sjá hvernig þessi efnilegi bakvörður tekur það að sér. Davíð Helgi Aronsson, liðsfélagi hans úr Víkingi, kom á láni í Njarðvík í fyrra og spilar núna með Keflavík í Bestu deildinni. Núna ætlar Haraldur að reyna að feta í fótspor hans.

Komnir:
Guy Smit frá Vestra
Bragi Karl Bjarkason frá FH
Eiður Aron Sigurbjörnsson frá Vestra
Jóhann Ægir Arnarsson frá FH (á láni)
Leandro Fernandes frá Dúbaí
Aron Einarsson frá Leikni
Felix Mathaus frá Grænhöfðaeyjum
Guðmundur Magnússon frá Fram (var á láni hjá Breiðabliki)
Alexander Helgi Sigurðarson frá KR (á láni)
Hrafn Guðmundsson frá Stjörnunni (var á láni hjá KFA)
Haraldur Ágúst Brynjarsson á láni frá Víkingi
Stefán Gísli Stefánsson á láni frá Val
Arnleifur Hjörleifsson alfarið frá ÍA (var á láni)

Farnir:
Davíð Helgi Aronsson í Keflavík (var á láni frá Víkingi)
Viggó Valgeirsson til ÍBV (var á láni)
Almo til Danmerkur (var á láni frá Víkingi)
Svavar Örn Þórðarson í HK
Dominik Radic í HK
Aron Snær Friðriksson í Víking
Ýmir Hjálmsson í Völsung
Thomas Boakye til Svíþjóðar

Kominn og farinn:
Alex Freyr Elísson frá Fram og til NSÍ Runavíkur



Fyrstu þrír leikir Njarðvíkur:
25. apríl, Þróttur R. - Njarðvík (AVIS völlurinn)
1. maí, Grindavík - Njarðvík (Stakkavíkurvöllur)
8. maí, Njarðvík - Fylkir (JBÓ völlurinn)
banner