23.06.12 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Jordon Mutch til Cardiff (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Cardiff City í ensku fyrstu deildinni hefur fengið til sín miðjumanninn Jordon Mutch frá Birmingham City.
Mutch, sem er 20 ára gamall skrifaði undir þriggja ára samning við Cardiff í gær, en hann lék 29 leiki með aðalliði Birmingham á síðasta tímabili.
Hann er vel kunnugur Malky Mackay, stjóra Cardiff, enda þjálfaði hann Mutch hjá Watford er hann var við stjórnvölinn þar.
Mutch hefur leikið með öllum yngri landsliðum Englands, en hann þykir einn af efnilegustu miðjumönnum Englands um þessar mundir.
Það verður því góð samkeppni fyrir Aron Einar Gunnarsson, sem leikur með Cardiff, en liðið ætlar sér að berjast um að komast í ensku úrvalsdeildina á næsta tímabili.

Heimild: Sky