23.06.12 - 15:24
Brynjar Ingi Erluson
Poulsen til Monaco (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Franska liðið Monaco hefur fengið danska miðvallarleikmanninn, Jakob Poulsen, til liðs við sig frá FC Midtjylland.
Poulsen, sem er 28 ára gamall hefur undanfarin tvö ár spilað vel með FC Midtjylland, en var áður á mála hjá AGF.
Hann stóð sig gríðarlega vel með danska landsliðinu á Evrópumótinu, þrátt fyrir að danska liðið hafi ekki komist upp úr riðlinum.
Hann heillaði þá Claudio Ranieri, þjálfara Monaco og ákvað sá ítalski að fá Poulsen í sínar raðir, en Monaco leikur í næst efstu deild í Frakklandi.

Heimild: Sky