23.06.12 - 18:00
Brynjar Ingi Erluson
Cicinho til Sport Recife (Staðfest) - Laus við Bakkus

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Brasilíski hægri bakvörðurinn Cicinho hefur samið við Sport Recife í heimalandi sínu, en hann gerir eins árs samning við félagið.
Cicinho, sem er 31 árs gamall, viðurkenndi í síðustu viku að hafa verið í stríði við Bakkus, þar sem að hann drakk áfengi og reykti sígarettur eftir æfingar hjá Roma og hafi verið við það að fara út í eiturlyfjaneyslu.
Ferilinn hans var í mikilli sveiflu, en hann lék árum áður með Real Madrid og var á tíma einn besti hægri bakvörður heimsins. Hann hefur nú ákveðið að vekja knattspyrnuferil sinn aftur til lífsins og samdi við Sport Recife, sem að leikur í efstu deild í Brasilíu í dag.
Hann gerir samning til lok júlí á næsta ári, en hann er ánægður með tilveruna í dag og segir að eiginkona hans hafi hjálpað honum í gegnum erfiðleikana.
,,Vandamál mitt átti sér stað í tvo mánuði. Núna hef ég náð bata þökk sé eiginkonu minni og hef ég öðlast nýtt og betra líf,\" sagði Cicinho.
Sport Recife er eitt af betri liðunum í Brasilíu, en liðið varð brasilískur bikarmeistari á síðasta tímabili.

Heimild: Soccerway