Fotbolti.net
23.06.22 - 10:36
Elvar Geir Magnússon

Man Utd leggur fram nýtt tilboð í De Jong

Frenkie de Jong í leik með hollenska landsliðinu.

Frenkie de Jong í leik með hollenska landsliðinu.

Canon

Mynd: EPA

Manchester United er að fara að leggja fram nýtt tilboð í Frenkie de Jong, miðjumann Barcelona. Manchester Evening News greinir frá.

Áður hafði tilboði United upp á 52 milljónir punda, auk möguleika á árangurstengdum greiðslum, verið hafnað. United er að fara að leggja fram nýtt og endurbætt tilboð.
Talið er að Barcelona vilji fá um 65 milljónir punda, auk möguleika á árangurstengdum greiðslum, fyrir þennan fyrrum leikmann Ajax.

De Jong er efstur á óskalista Erik ten Hag, stjóra Manchester United, núna í sumarglugganum og segja fréttir að lögð sé mikil áhersla hjá félaginu að krækja í leikmanninn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.