Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
   mán 23. júní 2025 11:09
Elvar Geir Magnússon
Viðræður við Konate ganga brösuglega
Ibrahima Konate.
Ibrahima Konate.
Mynd: EPA
Samningaviðræður Ibrahima Konate og Liverpool ganga erfiðlega en núgildandi samningur franska varnarmannsins rennur út eftir eitt ár og Guardian segir að hann hafi þegar hafnað tilboði um framlengingu.

Viðræðurnar við Konate voru settar á smá bið meðan verið var að ræða nýja samninga við Mohamed Salah og Virgil van Dijk.

Konate er sagður hafa orðið fyrir vonbrigðum með samningstilboðið frá Liverpool og hvernig samningurinn var uppsettur. Umboðsmenn hans þrýsta á að hann fái hærri grunnlaun en samningstilboðið byggðist að miklu leyti á frammistöðutengdum greiðslum.

Liverpool missti Trent Alexander-Arnold þegar samningur hans var að renna út. Félagið endaði á að fá 10 milljónir punda fyrir hann þar sem Real Madrid borgaði fyrir að fá hann fyrr, til að taka þátt í HM félagsliða.

Andy Robertson er einnig á leið í lokaár síns samnings en Liverpool er tilbúið að selja hann til Atletico Madrid ef hann vill fara.

Það hefur verið nóg að gera í glugganum hjá Liverpool sem hefur þegar keypt Florian Wirtz og Jeremie Frimpong. Félagið er að ganga frá kaupum á Milos Kerkez og þá er Marc Guehi á blaði. Jarell Quansah er á barmi þess að vera seldur til Bayer Leverkusen.
Athugasemdir