Fotbolti.net
23.06.26 - 23:28
Brynjar Ingi Erluson

Fjórði til að spila 200 landsleiki

Fjórði til að spila 200 landsleiki
Canon

Mynd: EPA

Luka Modric er aðeins sá fjórði í sögunni til þess að spila 200 landsleiki, en hann náði þessum merka áfanga fyrir nokkrum mínútum er leikur Króatíu og Panama hófst í riðlakeppni heimsmeistaramótsins.
Hinn fertugi Luka Modric er að leika á tíunda stórmóti sínu með Króatíu.

Hann er talinn einn besti miðjumaður aldarinnar og var lykilmaður í sigursælu liði Real Madrid, þar sem hann vann hvorki meira né minna en sex Meistaradeildartitla.

Modric er á sínum stað í byrjunarliði Króatíu gegn Panama í annarri umferð riðlakeppni HM og nær þar ótrúlegum áfanga. Þetta er hans 200. landsleikur.

Aðeins þrír leikmenn höfðu náð þeim áfanga fyrir kvöldið: Cristiano Ronaldo, Lionel Messi og Bader Al-Mutawa.

Ronaldo á flesta landsleiki, 230 talsins. Al-Mutawa lék 202 leiki fyrir Kúveit og Messi er í þriðja sæti með 201 leik, einum meira en Modric.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.