Fotbolti.net
24.06.26 - 01:08
Brynjar Ingi Erluson

Byrjunarlið Kólumbíu og Kongó: Sömu lið og síðast

Fara Kólumbíumenn áfram í nótt?

Fara Kólumbíumenn áfram í nótt?

Canon

Mynd: EPA

Kólumbía og Kongó eigast við í síðasta leik næturinnar í K-riðli heimsmeistaramótsins. Leikurinn hefst klukkan 02:00 og verður í beinni textalýsingu á Fótbolti.net.
Kólumbíumenn unnu Úsbeka, 3-1, í fyrstu umferðinni á meðan Kongó gerði 1-1 jafntefli við Portúgal.

Það eru engar breytingar á liðunum frá síðasta leik. James Rodriguez er auðvitað með fyrirliðabandið hjá Kólumbíu. Hann Luis Díaz, Luis Suarez, og Daniel Munoz eru allir á sínum stað.

Stærstu stjörnurnar í Kongó eru Aaron Wan-Bissaka, Yoane Wissa, Chancel Mbemba, Ngalayei Mukau, Cedric Bakambu og Axel Tuanzebe.

Sigur fleytir Kólumbíu áfram í 32-liða úrslitin.

Kólumbía: Vargas (M); Munoz, Sanchez, Lucumi, Mojica; Puerta, Lerma, Jhon Arias; Rodriguez (F), Suarez, Diaz.

Kongó: Mpasi (M); Wan-Bissaka, Mbemba (F), Tuanzebe, Kapuadi, Masuaku; Mukau, Moutoussamy, Kayembe; Bakambu, Wissa.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.