23.07.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Bolic til Istanbulspor AS. (Staðfest)
Elvir Bolic sem leikið hefur með Rayo Vallecano seinustu ár er genginn til liðs við Istanbulspor AS í Tyrklandi. Bolic sem er 31 árs og er frá Bosníu og Herzegóvínu skirfaði undir 1 árs samning við Tyrkina en hann vildi ekki spila með Rayo í 2.deild eftir að liðið féll í vor.
