23.07.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Kevin Davies til Bolton. (Staðfest)
Kevin Davies sem lék í liðin Southampton á síðustu leiktíð gekk í kvöld í raðir Bolton eftir að hafa komist í gegnum læknisskoðun. Davies er 26 ára gamall framherji sem var leystur undan samningi við dýrlingana í lok síðasta tímabils. Hann heillaði Sam Allardyce stjóra Bolton svo mikið á reynslutímaili nú nýlega að stóri Sam bauð honum eins árs samning sem skrifað var undir í kvöld. Davies skoraði eitt marka liðsins í 4-0 sigri á Portadown í vináttuleik á laugardaginn.
