Fotbolti.net
23.07.12 - 12:26
Magnús Már Einarsson

Steven Beattie í Tindastól (Staðfest)

Steven Beattie í Tindastól (Staðfest)
Canon

Mynd: Valgeir Kárason

Tindastóll hefur fengið framherjann Steven Beattie í sínar raðir en hann hefur raðað inn mörkunum í bandaríska háskólaboltanum undanfarin ár.

Beattie er frá Írlandi en árið 2010 skoraði hann 26 mörk og lagði upp 16 í 25 leikjum. Hann varð síðan háskólameistari með Northern Kentucky háskólanum í annarri deild í háskólaboltanum.
,,Tilbúinn að takast á við nýja áskorun. Hlakka til að spila minn fyrsta leik á laugardag,\" skrifaði Beattie á Twitter síðu sína í dag.

Hjá Tindastóli mun Beattie fá það hlutverk að fylla skarð Ben Everson sem gekk í raðir Breiðabliks fyrir helgi eftir að hafa skorað sjö mörk í fyrstu deildinni í sumar.

Tindastóll missti einnig Theo Furness til ÍA og líklegt er að Stólarnir styrkji sig meira áður en félagaskiptaglugginn lokar um mánaðarmótin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.