Fotbolti.net
23.07.12 - 23:32
Elvar Geir Magnússon

Paul McShane í Aftureldingu (Staðfest)

Paul ásamt Pétri Magnússyni formanni meistarflokksráðs karla hjá Knattspyrnudeild Aftureldingar

Paul ásamt Pétri Magnússyni formanni meistarflokksráðs karla hjá Knattspyrnudeild Aftureldingar

Canon

Mynd: Afturelding

Skoski miðjumaðurinn Paul McShane hefur ákveðið að ganga til við Aftureldingu. Paul kemur til Aftureldingar frá Grindavík en hann hefur leikið í úrvalsdeildinni hér heima síðustu ár með Fram og Keflavík auk Grindavíkur.
Gengið hefur verið frá málum hans milli Aftureldingar og Grindavíkur og ætlunin er að hann verði kominn með leikheimild í næsta leik Aftureldingar gegn KF næstkomandi laugardag.

Afturelding er nú í toppbaráttu 2. deildar, aðeins tveimur stigum frá KV og Reyni Sandgerði sem eru í efstu sætunum.

,,Lið Aftureldingar er að mestu skipað heimamönnum og athygli hefur vakið að aðeins 4 nýjir leikmenn hafa gengið til liðs við félagið á þessu tímabili og þar af eru tveir sem léku með með liðinu að hluta til síðasta sumar. Markmið liðsins er að fara upp í 1. deild í sumar og er ætlunin með komu Paul að tryggja að þau markmið náist,\" segir í tilkynningu frá Aftureldingu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.