23.07.18 - 13:59
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bryndís Lára í markið hjá ÍBV (Staðfest)

Bryndís Lára er farin aftur til Eyja.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bryndís Lára er farin aftur til Eyja.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV hefur fengið markvörðinn Bryndísi Láru Hrafnkelsdóttur aftur til Vestmannaeyja. Hún kemur frá Þór/KA á lánssamningi út tímabilið.
Bryndís Lára varð Íslandsmeistari með Þór/KA í fyrra en eftir tímabilið tilkynnti hún að hún ætlaði að taka sér frí frá fótbolta og einbeita sér að frjálsum íþróttum.
Bryndís skipti aftur í Þór/KA í byrjun tímabils vegna meiðsla Helenu Jónsdóttur. Hún spilaði fjóra leiki með Akureyrarliðinu í byrjun tímabils áður en hin sænska Johanna Henriksson kom til liðsins.
Bryndís lék með ÍBV frá 2012 til 2016 og hún ætlar núna að taka aftur slaginn með Vestmannaeyjaliðinu.
Hin bandaríska Emily Armstrong hefur varið mark ÍBV í sumar og það er spurning hvort hún verði áfram hjá félaginu eða hvort hún og Bryndís Lára verði í samkeppni.
ÍBV hefur ollið vonbrigðum á þessu tímabili og er aðeins með 11 stig eftir 10 leiki í sjötta sæti Pepsi-deildarinnar.