Fotbolti.net
23.07.18 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson

Jón Alfreð Sigurðsson til Magna (Staðfest)

Jón Alfreð Sigurðsson til Magna (Staðfest)
Canon

Mynd: Magni

Jón Alfreð Sigurðsson mun leika á láni hjá Magna út tímabilið. Jón Alfreð er fæddur 2000 og kemur á láni frá Stjörnunni.
Magna vantar liðsstyrk í fallbaráttu Inkasso-deildarinnar þar sem liðið er á botninum með sex stig eftir tólf umferðir.

Jón Alfreð er uppalinn hjá Stjörnunni og leikur sem miðvörður. Magni hefur verið að fá á sig rúmlega tvö mörk á leik og vonast til að Jón geti hjálpað til við að minnka það.

Jón Alfreð er mikið efni og hefur meðal annars farið til Brighton á reynslu. Hann á 12 leiki að baki fyrir U17 landsliðið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.