"Þeir lögðu bara upp með að pakka í vörn og bomba fram og það gekk upp hjá þeim, þeir náðu inn einu marki þar sem við verjumst bara ekki nógu vel síðan erum við að reyna að ná inn marki en það bara gekk ekki upp í dag" Sagði svekktur Brynjólfur Andersen eftir 1-0 tap gegn nágrönnum sínum í HK.
Mikið hefur verið talað um Brynjólf upp á síðkastið í sjónvarpi, hlaðvarpi og á samfélagsmiðlum en hvað hefur Binni að segja um þessa umræðu?
" Ég meina er það ekki bara gott ef það er verið að tala um mann en ég meina mér finnst ég hafa verið að spila mjög vel þessa fyrstu leiki fyrir kannski utan fyrsta leikinn hjá okkur þar sem mér finnst ég eiga slakan leik en ég tek það bara á mig"

Lestu um leikinn: HK 1 - 0 Breiðablik
Voru þetta sanngjörn úrslit að mati Brynjólfs?
"Ég myndi ekki segja það þar eina sem þeir gera var að bomba fram og fengu bara eitt færi þannig ég get ekki sagt þetta sé sanngjarnt"
Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
Athugasemdir