16 ára búinn að byrja tvo Evrópuleiki - „Ólýsanlegt að spila þessa leiki"

Marínó Steinar á reynslu hjá Atalanta á Ítalíu

Mynd: Vestri

Marínó Steinar á reynslu hjá Atalanta á Ítalíu

Mynd: Vestri
Lengjudeildarlið Vestra mætti RFS frá Lettlandi í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar fyrr í dag. Leikurinn endaði 4-1 fyrir heimamönnum.
Marinó Steinar Hagbarðsson 16 ára miðjumaður Vestra var í byrjunarliði í dag og gegn Qarabag í síðustu umferð í Evrópuævintýri Vestra. Fótbolti.net ræddi við hann eftir leikinn.
„Já þetta er bara ólýsanlegt að spila þessa leiki, þetta er að sjálfsögðu erfitt en þetta er bara já geggjuð tilfinning".
Eins og áður kom fram þá var Marínó einnig í byrjunarliði gegn Qarabag í síðasta Evrópuleik Vestra. Var mikill munur á liðunum tveimur og leikmönnum liðana?
„Mér fannst svona í heildina smá erfiðara að spila við Qarabag en RFS var líka alvöru áskorun".
Marínó Steinar er uppalinn hjá Vestra og hefur spilað í öllum yngri flokkum liðsins, hvernig er að taka þátt og spila leikina í Evrópuævintýri með uppeldisklúbbnum?
„Að spila með Vestra, uppeldisfélaginu, í Evrópukeppni er bara geggjuð tilfinning og ég er bara þakklátur fyrir öll tækifærin sem hafa komið".
Seinni leikurinn í einvíginu fer fram eftir nákvæmlega viku á Avis-vellinum í Laugardal, hvernig leggst sá leikur í þig?
„Seinni leikurinn leggst bara vel í mig, ég er ótrúlega spenntur og ég held að við eigum nóg inni".



