23.07.26 - 14:04
Kári Snorrason
Garnacho til Villa (Staðfest)

Garnacho og Unai Emery.

Mynd: Aston Villa

Garnacho og Unai Emery.

Mynd: Aston Villa
Alejandro Garnacho er genginn í raðir Aston Villa á eins árs láni frá Chelsea.
Samningurinn inniheldur kaupákvæði sem verður virkjað ef ákveðin skilyrði nást. Samkvæmt enskum miðlum nemur kaupverðið þá um 42 milljónum punda
Þessi geðþekki Argentínumaður skoraði eitt mark í 24 deildarleikjum með Chelsea á síðasta tímabili. Hann var keyptur til Chelsea frá Man Utd fyrir ári síðan á 40 milljónir punda.
Chelsea keypti á dögunum Morgan Rogers frá Aston Villa fyrir metfé. Villa leikur í Meistaradeildinni á komandi leiktíð og vill stjórinn Unai Emery breikka hópinn.

Alejandro. Announced. pic.twitter.com/2rsRli9q8Q
— Aston Villa (@AVFCOfficial) July 23, 2026