Fotbolti.net
23.07.26 - 13:52
Elvar Geir Magnússon

Camavinga og Berge á radarnum hjá Man Utd

Eduardo Camavinga.

Eduardo Camavinga.

Canon

Mynd: EPA

Manchester United hyggst halda áfram að styrkja miðsvæði sitt og hefur áhuga á Eduardo Camavinga hjá Real Madrid og Sander Berge hjá Fulham.

United hefur þegar fengið tvo miðjumenn í sumar; Andrey Santos frá Chelsea og Youri Tielemans frá Aston Villa. En Casemiro er farinn og Manuel Ugarte verður lengi frá vegna meiðsla í hné.

Guardian segir að Camavinga vilji helst vera áfram hjá Real en spænska félagi gæti verið opið fyrir því að selja Frakkann til að skapa pláss fyrir Rodri frá Manchester City. Camavinga er 23 ára og á þrjú ár eftir af samningi sínum. Hann var ekki valinn í franska landsliðshópinn.
Berge er 28 ára norskur landsliðsmaður sem hefur áður verið orðaður við Manchester United. Þessi fyrrum leikmaður Sheffield United og Burnley hefur mikla reynslu úr enska boltanum.

Aðrir miðjumenn sem United hefur sýnt áhuga eru meðal annars Alex Scott hjá Bournemouth og Manu Kone hjá Roma.
Sander Berge.

Sander Berge.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.