23.07.26 - 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Iraola er líklegri til að gefa þeim þá upplifun"

Andoni Iraola, nýr stjóri Liverpool.

Mynd: EPA

Iraola stýrði Bournemouth síðustu árin.

Mynd: EPA

Andoni Iraola, nýr stjóri Liverpool.

Mynd: EPA
Andoni Iraola var eftir síðasta tímabil ráðinn stjóri Liverpool eftir að Arne Slot var rekinn. Hvernig horfa stuðningsmenn Liverpool á þá ákvörðun að breyta um stjóra?
Fotbolti.net ræddi við tvo Liverpool stuðningsmenn, Hrafn Kristjánsson og Magnús Hauk Harðarson, og spurði þá út í ráðninguna.
Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 18. júlí á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast neðst í fréttinni, en boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.
Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.

„Mér líst verulega vel á Iraola," segir Hrafn. „Það eru ansi margir aðrir þættir sem þyrftu að smella til að liðið keppi um þann stóra en Spánverjinn spilar leikstíl sem er meira í stíl við þungarokkið hans Klopp. Held að flestum Liverpool stuðningsmönnum þyrsti að sjá aftur Liverpool lið sem berst frá fyrstu mínútu og spilar spennandi fótbolta. Iraola er líklegri til að gefa þeim þá upplifun en Arne Slot."
Magnús Haukur sér þetta á svipaðan hátt. „Iraola er maður með plan, annað en sá hollenski og er ég spenntur fyrir því. Iraola þjálfar og gerir leikmenn betri og Liverpool þarf líka að geta þróað leikmenn áfram eins og Klopp gerði."
Báðir vilja sjá Liverpool verða árásargjarnara, orkumeira og þróa leikmenn betur en þeim fannst hafa gerst síðasta árið undir stjórn Arne Slot.

TENGT EFNI
Liverpool aftur í þungarokkið? - Draumakaup og breytt lið

Iraola stýrði Bournemouth síðustu árin.

Mynd: EPA