Fotbolti.net
23.07.26 - 19:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ívar Orri stöðvaði leikinn vegna þrumuveðurs

Ívar Orri stöðvaði leikinn vegna þrumuveðurs
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ívar Orri Kristjánsson hefur flautað leik slóvenska liðsins Aluminij og albanska liðsins Dinamo Tirana í forkeppni Sambandsdeildarinnar af vegna veðurs.

Ívar Orri er að dæma leikinn en flautaði af eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik vegna þrumuveðurs.
Leikurinn fer fram í Slóveníu en gestirnir voru með 1-0 forystu þegar Ívar Orri flautaði af.

Það var um hálftíma seinkun á leiknum en Ívar Orri er búinn að flauta leikinn aftur á.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.