23.07.26 - 15:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Byrjunarlið Vestra í Lettlandi: 16 ára á miðjunni

Mynd: Vestri

Mynd: Vestri
Klukkan 16:30 hefst fyrri leikurinn í viðureign RFS og Vestra í 2. umferð forkeppninnar í Sambandsdeildinni. Leikurinn fer fram í Riga í Lettlandi og verður í beinni útsendingu á SÝN Sport og beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.
Bikarmeistararnir í Vestra eru komnir í forkeppni Sambandsdeildina eftir að hafa dottið úr forkeppni Evrópudeildarinnar eftir einvígi gegn Qarabag.
Vestri spilaði síðast á mánudagskvöld gegn HK á útivelli og Daniel Badu, þjálfari Vestra, gerir þrjár breytingar milli lekja.

Lestu um leikinn: RFS 0 - 0 Vestri
Þeir Guðmundur Arnar Svavarsson, Breki Þór Hermannson og Þórður Gunnar Hafþórsson taka sér sæti á bekknum og þeir Marinó Steinar Hagbarðsson, Guðmundur Páll Einarsson og Emmanuel Duah koma inn í liðið.
Marinó Steinar er fæddur árið 2009 og verður 17 ára í desember.
Marinó Steinar er fæddur árið 2009 og verður 17 ára í desember.
Byrjunarlið RFS
Jevgenijs Nerugals, Roberts Veips, Aleksandar Filipovic, Lasha Odisharia, Janis Ikaunieks, Rostand Ndjiki, Dmitrijs Zelenkovs, Stefan Panic, Žiga Lipušcek, Martinš Kigurs, Strahinja Rakic
Byrjunarlið Vestri
Marvin Darri Steinarsson, Edson Eduardo Dias Gomes, Jacob Stensson, Thibang Sindile Theophilius, Gunnar Jónas Hauksson, Marinó Steinar Hagbarðsson, Emmanuel Agyeman Duah, Elmar Atli Garðarsson (fyrirliði), Chriss-Albin Mörfelt, Guðmundur Páll Einarsson, Sergine Modou Fall