
Byrjunarlið Stjörnunnar gegn Ilves: Ein breyting frá Færeyjum - Nýju mennirnir á bekknum


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjar á bekknum í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan tekur á móti finnska liðinu Ilves á Samsungvellinum í kvöld en leikurinn er fyrri af tveimur í einvígi liðanna í 2. umferð í undankeppni Sambandsdeildarinnar. Stjarnan sigraði færeyska liðið Víking frá Götu í 1. umferð en Ilves sigraði FC Differange 03 frá Lúxemborg. Byrjunarlið liðanna eru komin inn og má sjá þau hér að neðan.
Jón Þór gerði sex breytingar frá liðinu sem hann stillti upp í Færeyjum fyrir KR leikinn en ljóst var að hann vildi hvíla ákveðna lykilmenn. Birnir Snær, Emil Atlason og fleiri lykilmenn byrjuðu á bekknum í þeim leik. Liðið sem hann stillir upp í dag er líkara því sem hann stillti upp fyrir viku síðan en frá seinni leiknum gegn Víkingi Götu er einungis ein breyting á byrjunarliðinu.
Fyrirliðinn, Guðmundur Kristjánsson fór út af meiddur í þeim leik og er á bekknum í dag en í hans stað kemur Sindri Þór Ingimarsson. Árni Vilhjálmsson og Ari Leifsson eru á bekknum í dag en þeir spiluðu báðir sinn fyrsta leik fyrir Stjörnuna í 5-0 tapinu gegn KR, Árni byrjaði en Ari kom inn á undir lokin.
Byrjunarlið Stjarnan
Árni Snær Ólafsson, Gustav Kjeldsen, Þorri Mar Þórisson, Sindri Þór Ingimarsson, Örvar Eggertsson, Jóhann Árni Gunnarsson, Birnir Snær Ingason, Guðmundur Baldvin Nökkvason, Emil Atlason, Benedikt V. Warén, Örvar Logi Örvarsson
Byrjunarlið Ilves
Faris Krkalic, Matias Rale, Oliver Pettersson, Sauli Väisänen, Joona Veteli, Teemu Hytönen, Kalle Wallius, Anton Popovitch, Tatu Miettunen, Jesse Kilo, Jardell Kanga

Byrjar á bekknum í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð




