Fotbolti.net
23.07.26 - 21:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lengjudeildin: Þróttur fór illa með Leikni

Aron Snær Ingason

Aron Snær Ingason

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Leiknir R. 1 - 5 Þróttur R.
0-1 Örn Bragi Hinriksson ('1 )
0-2 Aron Snær Ingason ('41 )
0-3 Kári Kristjánsson ('52 )
0-4 Rúrik Gunnarsson ('55 , sjálfsmark)
0-5 Aron Snær Ingason ('71 )
1-5 Adam Örn Arnarson ('92 )
Lestu um leikinn
Þróttur heimsótti Leikni í Lengjudeildinni í kvöld. Þróttarar fengu draumabyrjun þegar Örn Bragi Hinriksson kom liðinu yfir strax á fyrstu mínútu.

Þorsteinn Emil Jónsson fékk dauðafæri til að jafna metin en hann skaut yfir markið.

Aron Snær Ingason bætti öðru marki Þróttar við undir lok fyrir hálfleiks eftir undirbúning Tryggva Snæs Geirssonar. Þróttarar voru ekki hættir og Kári Kristjánsson skoraði þriðja markið þegar hann skoraði á opið markið eftir að Ólafur Íshólm Ólafsson varði í slána.

Stuttu síðar var Rúrik Gunnarsson fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Aron Snær innsiglaði síðan sigur Þróttar með sínu öðru marki og fimmta marki liðsins.

Adam Örn Arnarson klóraði í bakkann fyrir Leikni eftir darraðadans inn á teignum í blálokin.

Þróttur er í 2. sæti með 30 stig, stigi á eftir toppliði Aftureldingar. Leiknir er í 8. sæti með 19 stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding14+2231
2Þróttur R.15+1730
3Fylkir14+1230
4HK15+1028
5Grótta14+122
6Vestri15-521
7Njarðvík14+120
8Leiknir R.15-419
9Grindavík14-314
10ÍR15-1113
11Völsungur14-178
12Ægir15-238
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.