Fotbolti.net
23.07.26 - 21:48
Ívar Björgvinsson

Gustav Kjeldsen eftir Evrópusigur: Margir hlutir gerst innan klúbbsins

Auglýsing
Sá til þess að Stjarnan helt hreinu í fyrsta sinn á tímabilinu.

Sá til þess að Stjarnan helt hreinu í fyrsta sinn á tímabilinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan tók á móti finnska liðinu Ilves í fyrri leik liðanna í 2. umferð í undankeppni Sambandsdeildarinnar en leiknum lauk með 1-0 sigri Stjörnunnar. Þetta var fyrsti leikur Stjörnunnar á tímabilinu sem liðið heldur hreinu, en Gustav Kjeldsen var í hjarta varnarinnar og var yfirburðar maður í vörn Stjörnunnar. Fótbolti.net var á staðnum og heyrði í honum eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 0 Ilves

„Þetta er aðeins leikur eitt af tveimur, bara fyrri hálfleikurinn sem var spilaður í dag. Mér fannst við klára verkefni dagsins, skoruðum eitt og héldum hreinu svo ég er sáttur.''

Leikurinn var einn sá rólegasti sem hefur verið spilaður á þessum velli í langan tíma en bæði lið fengu lítið af færum en Stjarnan náði aðeins að herja á gestina undir lok leiksins. 

„Já, mér fannst við gera þetta nokkuð vel, við þurftum að halda hreinu og náðum að skora eitt og síðan höldum við til Finnlands. Þar dugir okkur jafntefli.''

Eftir að hafa fengið á sig fimm mörk gegn KR hefur var það sterkt fyrir Stjörnuna að halda hreinu í dag.

„Já klárlega, mér fannst við kannski aðeins of mikið vera að spá í síðasta sunnudegi (5-0 tapinu gegn KR) og leggja aðeins of mikla áherslu á að halda hreinu. En núna er fókusinn kominn á næsta sunnudag og síðan förum við til Finnlands.''

Kom eitthvað á óvart við spilamennsku gestanna í dag?

„Nei í rauninni ekki, þetta var lokaður leikur, þeir lágu aftarlega og biðu eftir okkur. Við gerðum vel og vorum þolinmóðir og héldum áfram að láta boltann rúlla, á endanum fengum við okkar færi. Mér finnst þetta vera sanngjörn úrslit.''

Seinni leikurinn fer fram í Finnlandi eftir viku en Stjarnan fer út í hann með eins marks forskot. Hvað þarf liðið að gera til þess að klára einvígið?

„Ég held að við þurfum bara að halda áfram að gera það sem við gerðum í dag og þá förum við áfram. Við sjáum hvað þeir bjóða upp á í næsta leik og takast á við það.''

Gustav var besti maður Stjörnunnar í dag og hafði mikla stjórn á sóknaraðgerðum Ilves. Hvernig metur hann sína frammistöðu á tímabilinu heilt yfir?

„Þetta hefur verið svolítið upp og niður hingað til. Ég meiddist á miðju tímabilinu. Liðið, og ég, byrjaði nokkuð vel, svo margir hlutir gerst innan klúbbsins en ég held að þetta hafi verið vendipunktur tímabilsins og nú horfum við fram á veginn og sækjum betri úrslit.''

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.