Jón Þór eftir torsóttan sigur: Var það sem við reiknuðum með


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan tók á móti finnska liðinu Ilves í fyrri leik liðanna í 2. umferð í undankeppni Sambandsdeildarinnar en leiknum lauk með 1-0 sigri Stjörnunnar. Fótbolti.net var á staðnum og heyrði í Jóni Þór, þjálfara Stjörnunnar, eftir leikinn.
„Þetta var erfiður leikur, hann var lokaður en gott að vinna hann, frábært að ná þessu marki. Mér fannst strákarnir leggja mikla vinnu í þetta og vera með algjöra stjórn á því sem við vorum að gera varnarlega, við héldum hreinu, sem við höfðum ekki gert áður á þessu tímabili, það ber að fagna því og það vel. Við hefðum vilja láta boltann ganga hratt og búa til fleiri góðar stöður og fara með fleiri mörk út en sigurinn er góður og við fögnum því.''
Leikurinn var ansi rólegur og ekki mikil gæði sem boðið var upp á í sóknarleik beggja liða, að undanskildu marki Guðmunds sem skilur liðin að. Er Jón sáttur við frammistöðu liðsins?
„Ég er sáttur með sigurinn, ekki spurning.''
Kom eitthvað á óvart við spilamennsku Ilves hér í kvöld?
„Nei. Við vissum að þeir yrðu í fimm manna vörn og vera þéttir þar, þeir hafa verið þannig og það var það sem við reiknuðum með.''
Seinni leikur liðanna fer fram eftir viku í Finnlandi en Stjarnan fer með eins marks forskot í hann. Hvað þarf liðið að gera til þess að klára einvígið og komast í 3. umferðina.
„Það verður væntanlega aðeins öðruvísi verkefni og við þurfum bara að standa klárir að því og leggja mikla vinnu í leikinn, sýna þessa liðsheild sem við sýndum í dag. Mér fannst við vinna mjög vel saman og það þurfum við að gera úti líka og skerpa aðeins á hlutunum með boltann og reyna að láta hann ganga aðeins hraðar og búa til betri stöður og ógna markinu þeirra meira.''
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan.



