Byrjunarlið Víkings og Vals: Hrannar Snær byrjar í fyrsta sinn

Hrannar Snær Magnússon byrjar sinn fyrsta leik fyrir Víking

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingar eru án fyrirliðans í dag

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Patrick Pedersen fær sér sæti á bekknum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hrannar Snær Magnússon byrjar sinn fyrsta leik fyrir Víking

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Flautað verður til leiks í viðureign Víkings og Vals í Víkinni klukkan 19:15 og hafa byrjunarliðin verið opinberuð, þau má sjá hér að neðan.
Sölvi Geir Ottesen gerir þrjár breytingar á sínu liði frá svekkjandi tapi gegn Borac Banja Luka í vikunni. Aron Elís Þrándarson, Ármann Ingi Finnbogason og Oliver Ekroth koma allir út úr liðinu og sá síðastnefndi er ekki í leikmannahóp Víkings í dag.
Inn fyrir þá koma Sveinn Gísli Þorkelsson, Valdimar Þór Ingimundarson og Hrannar Snær Magnússon, en þetta er fyrsti byrjunarliðsleikur Hrannars fyrir Víking eftir að hann var fenginn til félagsins fyrr í þessum mánuði.
Chris Brazell gerir fjórar breytingar á sínu liði frá 4-4 jafntefli gegn KA í síðustu umferð en út koma þeir Samúel Kári Friðjónsson, Patrick Pedersen, Birkir Heimisson og Myles Veldman. Sá síðastnefndi er ekki í hóp.
Inn koma þá þeir Hörður Ingi Gunnarsson, Kristófer Dagur Arnarsson, Jakob Franz Pálsson og Shkelzen Veseli.
Byrjunarlið Víkingur R.
- 29. Aron Snær Friðriksson (m)
- 2. Sveinn Gísli Þorkelsson
- 6. Gunnar Vatnhamar
- 8. Viktor Örlygur Andrason
- 9. Helgi Guðjónsson
- 10. Gylfi Þór Sigurðsson (f)
- 22. Karl Friðleifur Gunnarsson
- 23. Nikolaj Andreas Hansen
- 25. Valdimar Þór Ingimundarson
- 70. Hrannar Snær Magnússon
- 77. Stígur Diljan Þórðarson
Byrjunarlið Valur
- 1. Frederik August Albrecht Schram (m)
- 3. Hörður Ingi Gunnarsson
- 4. Markus Lund Nakkim
- 5. Kristófer Dagur Arnarsson
- 10. Jónatan Ingi Jónsson
- 12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
- 15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f)
- 17. Lúkas Logi Heimisson
- 19. Dagur Orri Garðarsson
- 21. Jakob Franz Pálsson
- 29. Shkelzen Veseli

Víkingar eru án fyrirliðans í dag

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Patrick Pedersen fær sér sæti á bekknum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 19 | +44 | 48 |
| 2 | KR | 19 | +25 | 40 |
| 3 | Fram | 19 | +13 | 40 |
| 4 | Breiðablik | 19 | +6 | 30 |
| 5 | ÍA | 19 | -4 | 25 |
| 6 | Keflavík | 19 | -4 | 25 |
| 7 | Valur | 19 | -5 | 23 |
| 8 | Stjarnan | 19 | -12 | 21 |
| 9 | ÍBV | 19 | -11 | 17 |
| 10 | FH | 19 | -12 | 17 |
| 11 | KA | 19 | -12 | 16 |
| 12 | Þór | 19 | -28 | 15 |
