Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 24. janúar 2022 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fimm prósent líkur á að Mazraoui verði um kyrrt
Á förum eftir 16 ár.
Á förum eftir 16 ár.
Mynd: Getty Images
Hægri bakvörðurinn Noussair Mazraoui segir að það sé gríðarlega miklar líkur á því að hann sé á förum frá Ajax eftir tímabilið.

Hinn 24 ára gamli Mazraoui hefur verið hjá Ajax í 16 ár og hann telur að það sé kominn tími á nýja áskorun.

„Framtíð mín? Það er góð spurning. Það er mjög litlar líkur á því að ég verði áfram hjá Ajax, kannski fimm prósent líkur. Ég er tilbúinn í eitthvað nýtt, ég er búinn að vera hérna í 16 ár og mér finnst þetta góður tímapunktur að fara," sagði Mazraoui eftir sigur gegn PSV í toppslag hollensku úrvalsdeildarinnar í gær.

Samningur Mazraoui rennur út eftir tímabilið og er honum frjálst að ræða við önnur félög núna.

Hann hefur verið mikið orðaður við Barcelona en það er ljóst að önnur stór félög munu líka hafa samband við hann.
Athugasemdir
banner
banner
banner