Fotbolti.net
24.02.19 - 22:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Kepa útskýrir sína hlið - „Misskilið í hita leiksins"

Kepa útskýrir sína hlið - „Misskilið í hita leiksins"
Canon

Mynd: Getty Images

Kepa Arrizzabalaga, markvörður Chelsea, hefur sent frá sér yfirlýsingu, ef svo má segja, eftir atvik kvöldsins.

Chelsea tapaði fyrir Manchester City í úrslitum enska deildabikarsins eftir vítaspyrnukeppni.
Chelsea ætlaði að skipta Kepa út af eftir að hann varð fyrir hnjaski undir lok framlengingarinnar.

Willy Caballero var búinn að gera sig klárann og var á leiðinni inn á, en Spánverjinn Kepa neitaði að fara út af. Eitthvað sem sést ekki oft í fótboltanum.

Maurizio Sarri, stjóri Chelsea, tók brjálæðiskast á hliðarlínunni og ætlaði að strunsa inn í klefa, en hætti svo við það.

„Ég er leiður yfir því að skyldum ekki taka titilinn. Við börðumst til enda gegn frábæru liði. Við munum halda áfram að vinna til að verða sterkari," skrifar Kepa.

„Ég vil líka útskýra hvað gerðist í leiknum."

„Ég harma hvernig endirinn á leiknum leit út. Ekki á neinum tímapunkti hefur það verið ætlun mína að óhlýðnast stjóranum og hans ákvörðunum. Ég tel að allt hafi verið misskilið í hita leiksins. Stjórinn hélt að ég gæti ekki spilað áfram og það ætlun mín að tjá það að ég væri í góðu standi til að halda áfram að hjálpa liðinu."

„Ég ber fulla virðingu fyrir stjóranum og hans valdi."

Kepa talaði einnig við heimasíðu Chelsea og þar segir hann:

„Þetta voru tvær eða þrjár mínútur af ruglingi þangað til sjúkrateymið kom á varamannabekkinn. Þeir útskýrðu allt mjög vel."

Þegar Maurizio Sarri talaði við blaðamenn eftir leik, þá talaði hann líka um misskilning.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.