Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 24. febrúar 2020 15:30
Magnús Már Einarsson
Rodrygo fagnaði fyrir framan markvörðinn - Missir af El Clasico
Mynd: Getty Images
Rodrygo, framherji Real Madrid, fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt í leik með varaliði félagsins gegn SS Reyes í spænsku C-deildinni í gær.

Rodrygo skoraði frábært mark og kom varaliði Real Madrid í 2-0 þegar tvær mínútur voru eftir.

Rauða spjaldið er dýrkeypt fyrir Rodrygo því hann verður nú í leikbanni um næstu helgi þegar aðallið félagsins mætir Barcelona í toppslag.

Rodrygo hefur ekki verið í hóp hjá aðalliðinu í undanförnum þremur leikjum en hann hefði líklega fengið tækifærið gegn Barcelona þar sem Eden Hazard meiddist um helgina og verður frá keppni í nokkrar vikur.

Hér að neðan má sjá atvikið í gær.

Athugasemdir
banner
banner