Pressan eykst á Arne Slot, stjóra Liverpool, og er kominn upp hávær orðrómur um að Xabi Alonso muni taka við liðinu í sumar.
Alonso, sem hefur verið án starfs síðan hann lét af störfum hjá Real Madrid í janúar, er talinn helsti kostur Liverpool ef félagið ákveður að láta Slot fara.
Alonso, sem hefur verið án starfs síðan hann lét af störfum hjá Real Madrid í janúar, er talinn helsti kostur Liverpool ef félagið ákveður að láta Slot fara.
Það sem er mikilvægt í þessu þá hafa heimildarmenn nánir Spánverjanum staðfest, að sögn TeamTalk, að hann sé tilbúinn að snúa aftur í þjálfun fyrir næsta tímabil eftir að hafa látið af störfum hjá Real Madrid fyrr á tímabilinu. Hann þarf ekkert meira frí.
Liverpool hefur átt erfitt tímabil, en er í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti. Liðið hefur tapað tíu deildarleikjum á þessu tímabili sem er eitthvað sem Liverpool hafði ekki gert í tíu ár.
Þrátt fyrir að nokkur nöfn hafi verið orðuð við starfið á Anfield, þar á meðal Sebastian Hoeness hjá Stuttgart og Andoni Iraola hjá Bournemouth, er Alonso enn talinn fremstur í röðinni. Alonso er með sterka tengingu við Liverpool þar sem hann er fyrrum leikmaður liðsins.
Athugasemdir


