Fram mætir ríkjandi Íslandsmeisturum Víkings í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í Úlfarsárdal. Dregið var í 32-liða úrslitin á Laugardalsvelli í dag og leikið verður um páskahelgina frá 4. til 7. apríl.
Fótbolti.net ræddi við Rúnar Kristinsson, þjálfara Fram eftir dráttinn. Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Fótbolti.net ræddi við Rúnar Kristinsson, þjálfara Fram eftir dráttinn. Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
„Maður hefði alveg viljað fá aðra andstæðinga svona snemma á árinu í fyrsta alvöru leiknum. Vitandi það að Víkingur er með langbesta liðið að mínu mati. Þetta verður erfitt en gaman og áhugavert.
Eins og margir hafa sagt í gegnum tíðina ef þú ætlar þér að vinna bikarinn þá verðuru að vinna alla leikina. Einhvers staðar lendiru á móti bestu liðunum á leiðinni. Við verðum að vera brattir og hafa trú eins og við höfum haft. Við höfum staðið okkur vel í leikjum gegn Víkingi undanfarið, þó að við höfum kannski ekki unnið þá ennþá. Einhvern tímann er allt fyrst.“
Staða sem lið vilja ekki vera í
„Maður hefði alveg viljað fá andstæðinga á heimavelli sem væri meiri möguleiki að vinna. Það er auðvitað alltaf smá sjarmi yfir bikarnum. Við höfum fengið lið úr annarri og þriðju deild og það hefur verið erfitt. Í sjálfu sér eru allir leikirnir úrslitaleikir. Það skiptir engu hverjir andstæðingarnir eru. En ég held að það sé enginn sem óski sér þess að mæta Víkingi í fyrstu umferð. Menn vilja komast aðeins lengra.“
Tveir aðrir Bestu deildar slagir eru í 32-liða úrslitum. Þór mætir FH fyrir norðan og KR og Valur eigast við.
„Þegar lið detta út úr bikar snemma í apríl þá er bara deildin eftir. Það er staða sem þú vilt ekki vera í. Þú vilt fá fleiri leiki og vilt hafa bikarleik sem er smá karamella um að fara lengra í og alltaf gaman að keppa í henni. Við þurfum að gera allt sem við getum til að stríða Víkingum og eina leiðin til að fara áfram er að vinna þá,“ sagði Rúnar að lokum.
Athugasemdir






















